Fjallajólatré Toppfara frá upphafi
árin 2007, 2008, 2009, 2010,  2011, 2012, 2013, 2014,  2015, 2016, 2017, 2018,  2019 og 2020:

 

    F j a l l a
j ó l at r é 
T o p P f a r a

á r i ð

2 0 20
   
   


Hellismannaleið III
Frá Helli til Lauga
22. ágúst 2020
932 m

   
 


Stóra Grænafjall
við Krók að Fjallabaki
15. ágúst 2020
882 m


Hrútafjöll
Þingvöllum
5. desember 2020
836 m


Tindaskagi
Þingvöllum
3. október 2020
831 m

 

Litla Grænafjalll
við Krók að Fjallabaki
15. ágúst 2020
763

Skiptingahöfði
við Krók að Fjallabaki
15. ágúst 2020
749 m

Rauðölduhnúkur
Heklurótum
12. september 2020
581 m

Þjórsárdalur frá Háafossi niður í Gjána
13. júní 2020
576 m

Rauðöldur
Heklurótum
12. september 2020
564 m

Marardalur
í Henglinum
28. júlí 2020
499 m

Söðulhólar
Þingvöllum
3. október 2020
443 m

Stóra Sandfell
Hellisheiði
22. febrúar 2020
440 m

Súlur
Skarðsheiði
8. september 2020
434 m

Þrasaborgir
Lyngdalsheiði Þingv
21. nóvember 2020
429 m


Lakahnúkar
Hellisheiði
22. febrúar 2020
403 m


Stóri Dímon
Þingvöllum
5. desember 2020
393 m

Litla Sandfell
við Jórukleif Þingv
20. október 2020
338 m

Krossfjöll
Þingvöllum
12. desember 2020
337 m

Syðri Eldborg
Þrengslum
22. febrúar 2020
330 m


Nyrðri Eldborg
Þrengslum
22. febrúar 2020
320 m


Litli Reyðarbarmur
Lyngdalsheiði Þingvöllum
10. mars 2020
303 m
 

Krummar
Grafningi Þingvöllum
18. ágúst 2020
276 m

Stangarháls
Þingvöllum
12. desember 2020
255 m

Úlfljótsvatnsfjall
Þingvöllum
10. nóvember 2020
248 m
   


Breiðdalur
kringum Húsfell og Helgaf.
28. mars 2020
209 m

   
   

Alls mynda 25
   nýir tindar eða leiðir
 jólatré Toppfara
árið 2020
en alls var farið 
á 123 fjöll eða gönguleiðir
í alls 75 gönguferðum
 

   

 

 

 

Gleðileg jól
elsku Toppfarar !

Fjórtánda árið í sögu Toppfara er eitt það glæsilegasta í sögu klúbbsins sakir einmuna veðurblíðu og einu lygnasta veðri nokkurn tíma vikum saman nánast... sem skýtur skökku við þá erfiðleika sem að mannkyningu steðjaði á kórónuveiruárinu mikla...

Ekki síður er stórkostlegt ár að baki þar sem fleiri göngur voru farnar en í venjulegi árferði klúbbsins frá upphafi, þökk sé einstaklega sterkum og eljusömum Laugavegshópi þetta árið og svo innkomu fjölda nýliða sem bættust í klúbbinn á þessu ári...

Krafturinn og einhugurinn sem einkennir klúbbinn þessa stundina gefur þjálfurum kraft til þess að hafa dagskrána metnaðarfyllri en nokkurn tíma... en á árinu 2020 fórum við sögulega ofurferð um Laugaveginn á einum degi og hófum þar með árlegar ofurgöngur sem við viljum halda áfram meðan áhugi og geta er til staðar...

Dagskráin árið 2021 er því einstaklega kraftmikil og metnaðarfullt þrátt fyrir óleystan veirufaraldur sem þó sér fyrir endann á ef vonir rætast með bóluefni gegn C19...

Meðal annars byrjum við loksins á 10 ára verkefninu að þvera Ísland frá Reykjanestá að Langanesi... og hlökkum mikið til að upplifa þá yfirferð yfir landið okkar fallega... fyrir utan öll önnur spennandi sjaldförnu fjöllin sem bíða okkar árið 2021...

Vonandi náum við sem fyrst að mæta í fjallgöngu án samkomutakmarkana og fjarlægðartakmarkana á nýju ári... og getum knúsast og tekið hópmyndir að vild eins og áður...

Þangað til... gefumst við ekki upp þó á móti blási... heldur höldum áfram sama hvað... það er eina leiðin til að halda áfram að geta gengið á fjöll... og þar viljum við vera fyrst og fremst...

Gleðileg jól elsku Toppfarar... þið eruð langflottust... takk... fyrir að vera sífellt til í að fara ótroðnar slóðir með okkur í öllum veðrum og kljást við krefjandi aðstæður, veður og færð allt árið um kring... ekkert af því sem við upplifum í klúbbnum er sjálfgefið... verum þakklát númer eitt... og alltaf góð hvert við annað... hugsum í lausnum en ekki hindrunum... þá eru okkur alltaf allir vegir færir...
 

 

 

Jólamyndband Toppfara af Þríhyrningi í desember 2011
sem er orðin alger klassík fyrir jólin:

https://www.youtube.com/watch?v=AtFbXDT7TCU

 

 

    F j a l l a
j ó l at r é 
T o p P f a r a

á r i ð

2 0 1 9
   
   


Mt. Etna
Sikiley
21. september
3.048 m

   
 


Rótarfjallshnúkur
um Kotárjökul
Öræfakjökli
4. maí
1.972 m


Hábarmur
Grænihryggur
Hryggurinn milli gilja
Jökulgil
Fjallabaki
1. september
1.205 m


Kambhetta
Jarlhettutögl
Rauðhetta
Jarlhettum
28. september
882 m

 

Lakagígar
Laki
Tjarnargígur
27. júlí
824 m

Rauðufossar
að upptökum
Fjallabaki
19. október
801 m

Hellismannaleið II
frá Áfangagili í Landmannahelli
30. maí
708 m

Kotárjökull
á Rótarfjallshnúk
Öræfajökli
4. maí
640 m

Síldarmannagötur
úr Hvalfirði í Skorradal
16. mars
492 m

Selvogsgata
frá Bláfjallaafleggjara að Strandakirkju
2. nóvember
491 m

Panarea eyja
Sikiley
19. september
424 m

Súlufell
Ölfusi
12. janúar
487 m

Vatnafell
við Berserkjahraun
Snæfellsnesi
9. febrúar
416 m

Stóra Eldborg og
Geitahlíð
Reykjanesi
28. maí
395 m


Vulcano eyja
Sikiley
16. september
394 m


Leirvogsá 5
frá Leirvogsvatni að Sámsstöðum á Stardalshnúka
21. maí
386 m

Horn
við Berserkjahraun
Snæfellsnesi
9. febrúar
373 m

Lyklafell
Nesjavallaleið
15. október
310 m

Stromboli eyha
Sikiley
19. september
307 m


Miðfellsmúli
Hvalfirði
1. október
278 m


Lipari eyja
Sikiley
17. september
272 m

Leirvogsvatn
4. júní
206 m

Leirvogsá
frá Hrafnhólum
að Grafará
19. mars
198 m

Leirvogsá
frá Hrafnhólum
að Sámsstöðum
7. maí
185 m
 


Leirvogsá
frá Mosfelli
að Grafará
26. febrúar
83 m


Leirvogsá
frá sjó að Mosfelli
22. janúar
48 m


Gunnunes
Mosfellsbæ
24. september
40 m

 
   


Grafarvogsfjörur
frá Gufunesi að Korpu
12. nóvember
37 m

   
   


Vesturey
í Viðey
6. ágúst
35 m

   
   


Mosófjörur
frá Leirvogsá að Korpuá
29. október
30 m

   
   

Alls mynda
 30  nýir tindar eða leiðir
 jólatré Toppfara
árið 2019
en alls var farið 
á 81 fjöll eða gönguleiðir
í alls 69 gönguferðum
 

   

 

 

 

Gleðileg jól
elsku Toppfarar !

Tólfta árið er að baki þar sem gerð var tilraun til að bæta láglengisgöngum í dagskránna en mætingin var ekki sem skyldi í þessum léttari göngum... og þegar á leið árið voru skilaboðin skýr frá hópnum um að fjöllin væru það sem menn vildu.

Á Selvogsgötunni kristallaðist þetta best í huga þjálfara sem fannst þeir ekki hafa gefið fólkinu sínu þau stórkostlegheit sem fjallgöngurnar almennt gefa... það vantaði þennan sérstaka glampa sem geislar úr augum þeirra sem farið hafa í fjallgöngu sem breytir manni og gefur manni eitthvað sem hægt er að rifja upp með kökkinn í hálsinum út ævina... gangan á Rótarfjallshnúk um Kotárjökul og eins gangan á Hábarm að Grænahrygg og um Hrygginn milli gilja og niður Jökulgilið eru líklega skýrustu dæmin á árinu um það ævintýri sem býður okkar ef við bara þorum að leggja á ókunnar slóðir og prófa nýjar nálganir...

Það er einmitt þess vegna sem við viljum halda þeirri ævintýramennsku áfram.. þenja mörk okkar , reynslu og getu...
til þess að skapa áfram verðmæti, nýja reynslu og styrk
fyrir frekari áskoranir... 

Á fjórtánda ári klúbbsins ætlum við áfram að fara bæði á léttar og erfiðar göngur á þriðjudögum en bæta við skipulögðum þolþjálfunaræfingum einu sinni í mánuði í þeirri von að allir klúbbmeðlimir temji sér að æfa fjallgönguþolið markvisst til að bæta það eða viðhalda því þó árin leggist yfir...

Hugrekki, elja, ósérhlífni, áræðni og þrautsegja er það sem Toppfaralífið hefur kennt okkur að sé það sem þarf til að geta enst í fjallamennsku árum saman í öllum veðrum og aðstæðum... við þjálfarar Toppfara  viljum ekki gefa eftir þó árin færist yfir og ætlum því að spýta svolítið í lófana og viðhalda færni og getu til þess að geta farið í krefjandi göngur næstu árin...

Við Örn erum bljúg af þakklæti fyrir það sem er að baki... fyrir þann hágæða félagsskap, þétta vináttu, sterka samstöðu og geislandi gleði sem einkennir meðlimi og samveru þessa hóps... gleymum ekki að vera þakklát sama hvað... verum þakklát fyrir það sem er að baki... fyrir að hafa heilsu og getu til að komast á fjöll allt árið árum saman... fyrir að eiga félaga sem eru til í þessa dýrindis vitleysu með manni... :-) ... það er langt í frá sjálfgefið.. njótum þess meðan við getum... og missum ekki niður formið til þess arna þó aldurinn færist yfir...

... það er NB langt í frá sjálfsagt að ná að feta í fótspor þeirra höfðingja Toppfara sem náð hafa sjötugs aldri mætandi ennþá í erfiðustu göngur klúbbsins :-)
 

 

Jólamyndband Toppfara af Þríhyrningi í desember 2011
sem er orðin alger klassík fyrir jólin:

https://www.youtube.com/watch?v=AtFbXDT7TCU

 

    F j a l l a

j ó l at r é 


T o p P f a r a

 
á r i ð 


2 0 1 8
   
   


Kilimanjaro Afríku
með Ágústi Rúnarssyni
6. nóvember
5.895 m

   
 


Háskerðingur
Torfajökli
25. ágúst
1.288 m


Kristínartindar
Skaftafelli
22.júlí
1.131 m


Dagmálafjall
Eyjafjallajökulsrótum
3. mars
993 m

 

Fanntófell
Kaldadal
22. september
921 m

Klukkutindar
sunnan Skjaldbreið
27. október
899 m

Lýsuhnúkur
Snæfellsnesi
7. apríl
882 m

Hornfell
Eyjafjallajökulsrótum
3. mars
850 m

Hvítihnúkur
Snæfellsnesi
7. apríl
838 m

Lómagnúpur
Skeiðarársandi
21. júlí
782 m

Þverfell
Reyðarvatni
12. maí
663 m

Meradalahnúkar
Reykjanesi
6. janúar
345 m

Staki hnúkur
Þrengslum
25. september
431 m

Hellismannaleið I af III
Landmannaafrétti
2. júní
412 m


Langhóll Fagradalsfjalli
Reykjanesi
6. janúar
403 m


Eyrarfjall
Snæfellsnesi
3. febrúar
376 m

Stóri hrútur
Reykjanesi
6. janúar
363 m

Langihryggur
Reykjanesi
6. janúar
327 m

Sandfell Vigdísarvöllum
Reykjanesi
16. október
269 m
 
 


Eyrarhyrna
Snæfellsnesi
3. febrúar
279 m


Skálamælifell
Reykjanesi
24. apríl
181


Slaga
Reykjanesi
24. apríl
164 m

 
   


Langavatn
Reynisvatn
Hólmsheiði
2. október
129 m

   
   


Viðey
Reykjavík
12. júní
23 m

   
   


Alls mynda
 24 nýir tindar
 jólatré Toppfara
árið 2018
en alls var farið 
á 80 fjöll eða gönguleiðir
í alls 62 gönguferðum
 

   

 

 

 

Gleðileg jól !
elsku Toppfarar

Enn einu sinni lítum við yfir farinn veg á liðnu ári
og tínum upp hverja perluna á fætur annarri
sem bæst hafa í safnið þrátt fyrir sérstaklega erfitt veðurfar
þetta vorið og sumarið

Árið verður sérlega sögulegt fyrir þær sakir að tveir ötulir klúbbmeðlimir bættust í höfðingjahóp Toppfara,
þau Guðmundur Jón og Gerður Jensdóttir
en Gerður er þar með fyrsta konan til að njóta þessa heiðurs
og Guðmundur sá þriðji.
Gerður gerði sér ekki lítið fyrir og sigraði hæsta fjall Afríku Kilimanjaro í kyngimagnaðri Afríkuferð á vegum Ágústar Rúnarssonar fyrir Toppfara
og er sú ferð komin í demantahóp safnsins okkar.

Á tólfta ári klúbbsins ætlum við að líta okkur nær
og byrja að rekja okkur eftir öllum ám, fjörum
og vötnum sem finna má innan borgarmarkanna
og færa okkur svo smám saman
út fyrir borgina en þetta er margra ára verkefni
sem við ætlum að njóta þess að skrásetja
með fótum vorum næstu árin...

Reynslan hefur kennt okkur þessi ellefu ár sem eru að baki
að það er alveg sama hvað á gengur í veðri, mætingu, áhuga eða öðru... okkur tekst einhvern veginn alltaf að ná í margar kyngimagnaðar og ógleymanlegar ferðir
á hverju einasta ári sem við myndum aldrei vilja hafa verið án...
þess vegna höldum við ótrauð áfram
 og hlökkum til að bæta enn fleirum í safnið...
við einfaldlega getum ekki hætt...
eins og fleiri ötulir klúbbmeðlimir
sem hafa þessa sömu óbilandi ástríðu
fyrir nýjum kynnum við óbyggðirnar...

Hjartans þakkir elskurnar fyrir alveg hreint eðal félagsskap,
gleði og stuð öllum stundum... þetta var algert æði...
og næsta ár...
það verður án efa mjög forvitnilegt... :-)
 

 

Sjá hér jólamyndband Toppfara af Þríhyrningi í desember 2011
sem er að verða alger klassík:

https://www.youtube.com/watch?v=AtFbXDT7TCU

 

    F j a l l a
j ó l a
t r é 
T o p p
f a r a 
á r i ð 
2 0 1 7
   
   


St. Vincent Pyramid
Monte Rosa
Ítalíu
4.221 m

   
 


Gran Paradiso
Ítalíu
4.062 m


Aiguille du Midi
Frakklandi
3.636


Dyrhamar
Öræfaj0kli
1.927 m

 

Hvannadalshryggur
Öræfajökli
1.650 m

Goðatindur
Eyjafjallajökli
1.593 m

Rauðufossafjöll
Fjallabaki IV
1.230 m

Löðmundur
Fjallabaki V
1.091 m

Krakatindur
Fjallabaki IV
1.019 m

Vatnahettur
Jarlhettum
812 m

Vikrafell
Borgarfirði
543 m

Eldborg syðri
Lambafellshrauni
450 m

Stóri Dímon
Fljótshlíð
115 m

Geldinganes
Grafarvogi
28 m


Óbyggðahlaup 1
Grafarvogur
Kringum
Úlfarsfell
24,3 km


Óbyggðahlaup 2
4ra vatna leið
Rauða, Reynis
Langa og Hafravatn
25,3 km

Óbyggðahlaup 3
Grafarvogur
Geldinganes
Korpa
23,6 km

Óbyggðahlaup 4
Ásfjall
Hvaleyrarvatn
Kaldársel
21,0 km

Óbyggðahlaup 5
Leggjabrjótur
Svartagili í
Botnsdal
17,2 km
   


Óbyggðahlaup 6
Grænsdalur
Kattartjarnir
Reykjadalur
18,1 km

   
   


Alls mynda
 14 nýir tindar  jólatré Toppfara
árið 2017
og 6 óbyggðahlaup
en alls var gengið
á 91 fjall
í 60 fjallgöngum...
mætt í 4 jaðaríþróttir
og farið í
6 óbyggðahlaup
á árinu...
 

   

 

 

 

Gleðileg jól !
elsku Toppfarar

Hjartansþakkir fyrir dásamlegt 10 ára afmælisár
sem kom á óvart hvað varðaði
sérlega vel heppnaðar upprifjanir
á mörgum kyngimögnuðum fjöllum...
og einhvern veginn tókst okkur að næla
í fjórtán nýja fjallatinda þrátt fyrir að ætla okkur eingöngu að rifja upp gamlar slóðir...

Andinn og félagsskapurinn á þessu ári
var yndislegur í alla staði
margir nýir og sérlega flottir félagar
og vináttan dýpkaði enn meira hjá traustum meðlimum sem hafa þessa sömu óbilandi ástríðu
til að kanna ókunnar slóðir meðan þær gefast... hættum því aldrei meðan heilsa og andi leyfir...
við erum ótrúlega heppin að deila þessari fjalllaástríðu saman elsku vinir...

Á ellefta starfsárinu 2018
ætlum við að leita í ræturnar
og minna okkur á töfrana og gjöfina
sem felast í hverju einustu skrefi...
finna máttinn og anda inn orkunni
og heiluninni sem hver ganga gefur manni
ef maður einfaldlega gefur því gaum...
njótum hvers augnabliks í óbyggðunum...
það er margfalt þess virði að taka fyrsta skrefið
njóta fjallanna sem dalanna
og gefast aldrei upp sama hvað...

Hverjir eru til í...
 að ganga á 60 ólík fjöll
í 90 gönguferðum
eins og á venjulegu Toppfaraári
... og taka auk þess áskorun um
50 fjallahlaup á árinu 2018 ?
... eða bara vera með á eigin forsendum
og taka 50 göngur á árinu á þinn hátt
... já komdu með...
og njótum þess að gera þetta saman :-)

 

 

https://www.youtube.com/watch?v=AtFbXDT7TCU


 
      F j a l l a
 j ó l a t r é 
 T o p p f a r a   
á r i ð   2 0 1 6
     
     


Rysi Póllandi og Slóvakíu
2.501 m

     

 

 


Ciemniak peak Póllandi/Slóvakíu
2.120


Kasprowy peak
Póllandi/Slóvakíu
2.096


Eagle's Perch' skarð
Póllandi
1.997 m

   

 

 
Sveinsgnípa
Öræfajökli
1.928 m

Ornak Peak
Póllandi
1.857 m

Sauðhamarstindur
Lónsöræfum
1.326 m
   

 


Barmur
Fjallabai
938 m

Rauðakúla
Snæfellsnesi
928 m

Hreggnasi
Snæfellsnesi
889 m

Hryggurinn milli gilja
Fjallabaki
850 m

Hestur
Snæfellsnesi
832 m
 

 


Halldórsgil
Fjallabaki
811 m

Sveinsgil
Fjallabaki
810 m

Tröllakrókar
Lónsöræfum
748 m

Þorgeirsfellshyrna
Snæfellsnesi
638 m

Jókubunga
Akrafjalli
537 m
 

Sandfell
Eilífsdal
429 m

Stóra Sauðafell
Kjós
417 m

Kinnahóll
Koppakófugili
395 m

Selsvallafjall
Núpshlíðarhálsi
373 m

Litla Sauðafell
Kjós
353 m

Illikambur
Lónsöræfum
320 m

Djúpavatnsbrúnir
Reykjanesi
271 m
     
Súlur
Reykjanesi
151 m
     
     
Reynisvatnsheiði
Grafarholti
134 m
     
     

Alls 27 nýir tindar  mynda jólatré Toppfara árið 2016 en alls var gengið á 71 fjall í 68 fjallgöngum... prófaðar 10 jaðaríþróttir og farið á eitt óbyggða-skyndihjálpar-námskeið.

   

 

 

 
   

Gleðileg jól elsku Toppfarar

Haf þökk fyrir mergjað ár 2016 sem gaf okkur nokkrar magnaðar tindferðir og óteljandi flottar kvöldgöngur í dásamlegum félagsskap og ótrúlega góðu veðri að mestu allt árið...

Mætingin var með besta móti á árinu þrátt fyrir að klúbbaðild drægist heilmikið saman og því er hópurinn þéttari en nokkru sinni enda andinn frábær og alger forréttindi að fá að ganga með ykkur á fjöll árum saman og kanna sífellt ókunnar slóðir...

Á þessu komandi  tíu ára afmælisári lítum við yfir farinn veg með einlægu þakklæti og auðmýkt en það er NB algerlega ólýsanlegt að uppgötva hversu mikið er að baki okkar sem fjallgönguklúbbur... þarf ekki nema að skoða nokkrar myndir... hvílík verðmæti... njótum þess að rifja þetta upp saman og gleymum ekki að njóta augnabliksins öllum stundum... sama hvað :-)

Léttar og erfiðar göngur til skiptis verða hér með festar í sessi í klúbbnum á næsta ári svo allir geti mætt reglulega óháð ástandi það misserið og byrjendur komið inn hvenær sem er...

Við leituðum svolítið til upprunans á þessum tímamótum en hlaupin voru órjúfanlegur hluti af fjallgönguklúbbnum í upphafi og því skreytum dagskrána svolítið með óbyggðahlaupum og fjalltímamælingum á árinu sem eru vonandi komin til að vera fyrir þá sem hafa áhuga á að vera með í því...

Einmitt til þess að halda okkur áfram í toppformi í fjallgöngum og hlaupum, því við ætlum að feta í fótspor höfðingja klúbbsins og ganga á Kilimanjaro og hlaupa heilt maraþon þegar við verðum
sjötug :-)

Hlökkum mikið til að halda upp á töluna tíu með ykkur elsku vinir... takk fyrir að hafa eljuna og ástríðuna eins og við fyrir þessu endalausa fjallabrölti... þið eruð einfaldlega langflottust !

   

 
***  F j a l l a j ó l a t r é ***  
T o p p f a r a
2 0 1 5

... byggt upp með 41 nýjum fjöllum klúbbsins í 62 göngum á alls 114 tinda, fjöll, fell, gönguleiðir
á ári sem sker sig algerlega úr fyrir að vera það allra erfiðasta frá upphafi...
og það fyrsta sem ekki toppar það sem er að baki, heldur er því miður í fyrsta sinn í sögunni síðra en fyrri árin
þrátt fyrir margar mergjaðar göngur á árinu... og liggur orsökin í tveimur ástæðum fyrst og fremst...
mjög erfiðu veðri ansi oft og dræmari mætingu í kjölfarið og almennt dvínandi áhuga miðað við fyrri ár
sem merkja má í fjallgöngum almennt á landinu...

En eftir mikla yfirlegu og vangaveltur komust þjálfarar að þeirri niðurstöður
að þeir eru engan veginn tilbúnir til að hætta að ganga á fjöll og safna nýjum slóðum í safnið
og ætla því að skreyta komandi ár með því að leika sér bara enn meira í óbyggðunum
og prófa hinar ýmsu jaðaríþróttir í leiðinni...
...takast á við Landvættina - hinar fjóru krefjandi þolraunir hvers landshluta
gönguskíði, hjól, sund og hlaup...
og láta gamlan draum rætast með því að koma skipulögðum skráningum á Fjallatímum á kortið...

Og því höldum við ótrauð áfram... ákveðnari en nokkru sinni
og vonum að allir sem hafa sömu óbilandi fjallabakteríuna og óþreytandi ævintýraþránna
slái til og verði með á fersku og sérlega ævintýralegu árinu 2016...
... Hvernig ætli þetta fari nú allt saman ?...
í versta falli förum við bara á fjall og skemmtum okkur konunglega yfir þessu öllu saman :-)
 

     
Skalli
Fjallabaki
1.027 m
   

 
 

 

 



Hamragilstindur
Fjallabaki
1.018 m

 

 

 

 


Bláhnúkur
Fjallabaki
952 m


Suður-Skalli
Fjallabaki
919 m

Rauðakúlur
Snæfellsnesi
915 m
 
 

 


 


Kálfstindur
við Högnhöfða
881 m

Vörðuhnúkur
Fjallabaki
866 m

Snjófjöll
Holtavörðuheiði
804 m


 

 

 


Uppgönguhryggur
Fjallabaki
802 m

Brandur
Fjallabaki
800 m

Hattur
Fjallabaki
783 m

Hrafntinnuborg
Snæfellsnesi
689 m

Kerlingarhnúkur
Bláfjöllum
657 m
 


 


Lýsuhyrna
Snæfellsnesi
665 m

Heiðartoppur
Bláfjöllum
632 m

Þúfufjall
Hvalfirði
555 m

Miðfjall
Flekkudal
532 m

Eldborg nyrðri
Lambafellshrauni
481 m


 


Kirkjufell
Snæfellsnesi
463 m

Háihryggur
Dyrafjöllum
463 m

Sandfell
Þingvallavatni
420 m

Mælifell
Þingvallavatni
391 m

Fífalvallafjall
Reykjanesi
371 m

Móhálsatindar
Reykjanesi
364 m

Stapafell
þingvallavatni
363 m

Gljúfur
Kistufelli Esju
320 m

Mávahlíðar
Reykjanesi
254 m

Bæjarfell
Krýsuvík
230 m

Keilisbörn
Reykjanesi
221 m

Fiskidalsfjall
Reykjanesi
210 m

Stóra Skógfell
Reykjanesi
208 m

Sólheimajökull
Suðurlandi
206 m
 
Hrafnafell
Reykjanesi
204 m

Festarfjall
Reykjanesi
203 m

Björgin
Þingvallavatni
187 m

Skinnhúfuhöfði
Þingvallavatni
181 m

Húsafell
Reykjanesi
175 m
 
   
Hagafell
Reykjanesi
159 m

Sundhnúkar
Reykjanesi
136 m

Borgarhöfðar
Þingvallavatni
122 m
   
     


Arnarfell
Krýsuvík
121 m

     
 

 

 

 

 

 

Toppfarar
gengu á
114 fjöll/tind/leiðir
árið 2015 í 61 gönguferðum.

Þar af
41 ný fjöll, tindar eða gönguleiðir sem byggja upp fjallajólatréð í ár.

Í lok ársins hafa klúbbmeðlimir gengið alls á
410  fjöll í alls 574 fjallgöngum...

 

 

 

 

   


Gleðileg jól elsku Toppfarar
með hjartans ósk um ögrandi og gefandi fjallgöngu- og jaðaríþróttaár 2016

Hjartansþakkir fyrir vináttu ykkar, gleði, jákvæðni og áræðni
gegnum þykkt og þunnt síðustu ár
Án ykkar hefði ekkert af þessum mögnuðu fjallgönguævintýrum orðið að veruleika

Megi okkur áfram gefast þakklæti, áræðni, staðfesta, þrautsegja,
óbilandi gleði og óþrjótandi forvitni
til þess að kanna áfram ný fjöll og fleiri jaðaríþróttir
í forvitnilegum áskorunum á komandi ári

Sjá fjallajólatré Toppfara síðustu átta árin...
2007, 2008, 2009,  2010,  2011, 2012, 2013 og 2014
... við hættum ekki fyrr en allavega tíu eru komin í safnið !

**********************
 

 
***  F j a l l a j ó l a t r é ***  
T o p p f a r a
2 0 1 4

... byggt upp með 54 nýjum gönguleiðum klúbbsins í 63 göngum á alls 126 tinda, fjöll, fell, gönguleiðir á árinu
þar sem andstæðurnar voru miklar með gönguferð til Nepal um hæstu fjöll heims, mjög krefjandi göngu á þrjá hæstu tinda landsins og á Heklu frá Næfurholti auk annarra magnaðra tindferða... á milli þess sem við söfnuðum einnig nýjum fjöllum á þriðjudögum og gengum meðfram alls kyns vötnum, gljúfrum og ám jafnt á fáförnum slóðum á hálendinu sem og í túnfæti borgarinnar...
sannarlega lærdómsíkt ár sem enn og aftur toppar það sem fyrir er.

 

     
Kala Pattar
Nepal
5.643 m
   

 
 

 

 


Grunnbúðir Everest Nepal
5.365 m

 

 

 

 


Sveinstindur  Öræfajökli
2.117 m


Sveinstindur
Langasjó
1.103 m

Snæbreið
Öræfajökli
2.036 m
 

 


 


Ýma
 Tindfjallajökli
1.469 m

Krúnuhetta
 Jarlhettum
881 m

MiðJarlhetta  Jarlhettum
875


 

 

 


Fögrufjöll
 Langasjó
866 m

Lambúshetta
Jarlhettum
818 m

Kvígindisfell
Lundareykjadal
789 m

Jarlhettutögl Jarlhettum
734 m

Bláfjallahnúkar
Bláfjallahrygg
627 m
 


 


Svörtuloft
Kjalardal Akrafjalli
615 m

Bjarnarhafnarfjall
Snæfellsnesi
604 m

Sandfell
Sandkluftavatni
551 m

Búrfell
Grímsnesi
551 m

Næfurholtsfjöll
Heklurótum 
470 m


 


Katlar
Skessuhorni
456 m

Skinnhúfuhöfði
Hvalvatni
437 m

Reynivallaháls
Hvalfirði
430 m

Vatnshlíð
Kleifarvatni
400 m

Hetta
Sveifluhálsi syðri
386 m

Meðalfell
Kjós
373 m

Rauðhólstindur
Sveifluhálsi syðri
362 m

Sandfell
Rjúpnadölum
355 m

Krýsuvíkurtindur
Sveifluhálsi syðri
341 m

Seltúnstindur
Sveifluhálsi syðri
338 m

Rjúpnadalahnúkar
Rjúpnadölum
329 m

Meyjarsæti
Sandkluftavatni
325 m

Hattur
Sveifluhálsi syðri
322 m

Selfjall
Rjúpnadölum
287 m

Bleikingstindur
Sveifluhálsi syðri
282 m

Drumbur
Sveifluhálsi syðri
260 m

Ölfusvatnsfjöll
Þingvallavatni
253 m

Stóra Lambafell
Kleifarvatni
248 m

Litla Lambafell
Kleifarvatni
237 m

Undirhlíðar
Kleifarvatni
227 m

Krýsuvíkur-Mælifell
Sveifluhálsi syðri
220 m

Kleifarhöfði
Kleifarvatni
215 m

Sveifluhálstögl
Sveifluhálsi syðri
200 m

Stefánshöfði
Kleifarvatni
190 m

Syðri Stapi
Kleifarvatni
190 m

Gljúfur Laxár
Kjós
163 m

Vífilsstaðahlíð
Vífilsstaðavatni
156 m

Gildruklettar
Þingvallavatni
145 m
 
Hádegishæð
Rauðavatni
136 m

Stórhöfði
Hvaleyrarvatni
133 m

Hádegisholt
Urriðakotsvatni
133 m

Sandahlíð
Urriðakotsvatni
131 m

Einbúi
Þingvallavatni
128 m
 
   
Vatnshlíð
Kleifarvatni
107 m

Rauðhólar
Elliðárvatni
99 m

Þyrilsnes
Hvalfirði
22 m
   
 

 

 

 

 

 

Toppfarar
gengu á
126
fjöll/tind/leiðir
árið 2014 í 63 gönguferðum.

Þar af
54 ný fjöll, tindar eða gönguleiðir sem byggja upp fjallajólatréð í ár.

Í lok ársins hafa klúbbmeðlimir gengið alls á
366  fjöll í alls 512 fjallgöngum
...

 

 

 

 

   


Gleðileg jól elsku Toppfarar
með hjartans ósk um ævintýralegt og spennandi fjallgönguár 2015

Við þökkum ykkur af öllu hjarta fyrir vináttu, gleði og hlýhug
á góðum sem erfiðum stundum á liðnu ári...

Guð gefi okkur öllum heilsu, þakklæti, áræðni, staðfestu, þrautsegju og gleði
til þess að njóta fjallanna og óbyggðanna áfram saman í þessum hópi
í forvitnilegum könnunarleiðöngrum okkar um nýjar slóðir

Haf þökk fyrir allt og allt...
Minningalundur Ketils Arnars Hannessonar að gjöf Toppfara
 lifir í sveitinni okkar sem og í hjarta um ókomna tíð
Ykkar Bára og Örn

Sjá fjallajólatré Toppfara síðustu sjö árin...

2007, 2008, 2009,  2010,  2011, 2012 og 2013
... eigum við ekki allavega að safna upp í tíu... ? :-)

**********************

 

***  F j a l l a j ó l a t r é Р***  
2 0 1 3

...skreytt 54 nýjum slóðum klúbbsins í 67 fjallgöngum á alls 130 tinda, fjöll, fell, gönguleiðir
á glimrandi flottu baksviðsárinu 2013 sem gaf fjöldann allan af nýjum og framandi stöðum í safnið...

 

 

 

 


Miðfellstindur
Vatnajökli
1.446  m

 

 

 

 

 


Bláfell
 Kili
1.228 m


Skyrtunna
Snæfellsnesi
952 m


Rauðafell
Brúarárskörðum
928 m

 

 


 


Snjófjall
Snæfellsnesi
887 m


Tröllakirkja Kolbeinsstaðafjalli

869 m


Svartafjall
Snæfellsnesi
850 m


 

 

 


Litla Baula
Norðurárdal
829 m


Rauðihnúkur
undir Skarðshyrnu
763 m


Trana
Esju
742 m


Múli
Esju
693 m


Búrfell
Þjórsárdal
688  m

 


 


Möðruvallaháls
Esju
674  m


Skálafellsháls
Svínadal
608 m


Austurtindur Akrafjalls
601  m


Kálfatindar
Hornbjargi
553 m


Ok
Skorradal
513 m


 


Bjólfell
Heklurótum
456 m

Hetta
Sveifluhálsi syðri
411 m

Sandfell
Kjós
402 m

Mófell
Skorradal
401 m

Miðfell
Hornbjargi
391 m

Arnartindur
Sveifluhálsi syðri
378 m

Skarðstindur
Sveifluhálsi syðri
372 m

Hattur
Sveifluhálsi syð
ri
374 m

Grændalur
Hveragerði
369 m

Ketilstindur
Sveifluhálsi syðri
361 m

Skófnaberg
Hornbjargi
359  m


Langafell
Heklurótum
356  m


Hádegisfjall
Svínadal
352 m


Eilífstindur
Hornbjargi
344  m


Kýrskarð
Hornvík
341 m

Tindgilsfell
Heklurótum
339 m

Gráfell
Heklurótum
338 m

Hádegisfjall
Heklurótum
327 m

Víðihamrafjall
Botnsdal
310 m


Almenningsskarð
Látravík
303  m


Stritla
Heklurótum
302 m


Dalmynnisfell
Snæfellsnesi
 294 m

Heimaklettur
Vestmannaeyjum
293 m

Blátindur
Vestmannaeyjum
286 m

Írafell
Svínadal
268 m


Horn
Hornbjargi
253 m


Helgafell
Vestmannaeyjum
241 m


Stóra Klif
Vestmannaeyjum
239 m


Vestmannaeyjum
236 m

Eldfell
Vestmannaeyjum
218 m


Sæfell
Vestmannaeyjum
201 m


Morsárdalur
Vatnajökli
  189 m

Bleikhóll
Sveifluhálsi syðri
164 m

Svartagjá
Botnsdal
154 m


Rekavíkurfjallshlíðar
Hælavíkurbjargi
141 m

 

 


Ásfjall
Hafnarfirði
135 m

Tröllakambur
Hælavíkurbjargi
122 m

Langikambur
Hælavíkurbjargi
19  m
 
 
 

 

 

 

 

 

Toppfarar gengu á 130 fjöll/tind/leiðir árið 2013 í
67 gönguferðum.
Þar af
54 ný fjöll, tinda eða gönguleiðir sem byggja upp fjallajólatréð í ár.

Í lok ársins hafa klúbbmeðlimir gengið alls á
 
308 fjöll
 í alls
411 fjallgöngum
...

 

 

 

 

   


Elsku Toppfarar

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
Hjartansþakkir fyrir eljuna, samstöðuna, hugrekkið, jákvæðnina, gleðina
og ekki síst ómetanlegu vináttuna sem skapast hefur á milli okkar á fjöllum og öllum stundum.

Megi árið 2014 gefa okkur áfram heilsu, gleði, þakklæti og áræðni
til að lenda í nýjum ómetanlegum ævintýrum í óbyggðunum...

Ykkar þjálfarar
Bára og Örn

Sjá fjallajólatré Toppfara síðustu sex árin... 2007, 2008, 2009,  2010,  2011 og 2012.

*****************

 

***  F j a l l a j ó l a t r é  ***  
T o p p f a r a

...skreytt með 48 nýjum slóðum klúbbsins í 69 fjallgöngum á alls 111 tinda, fjöll, fell, gönguleiðir
á glimrandi flottu afmælisárinu 2012 sem aldrei gleymist...

 

 

 


Triglav
hæsti tindur Slóveníu
2.864 m

 

 

 

 

 


Þverártindsegg
Vatnajökli

1.569 m


Innsta Jarlhetta
Langjökli
1.093 m


Skessukambur Súlárdal Skarðsheiði
1.048 m

 

 


 


Skarðskambur Súlárdal Skarðsheiði
1.038 m


Miðkambur Súlárdal
Skarðsheiði

1.026 m


Tröllakirkja Holtavörðuheiði
1.014 m


 

   

 


Þverfjall
SúlárdalSkarðsheið
884 m


Kálfstindar
Hæsti Norðri
884 m


Rauða Jarlhetta
Langjökli

878 m


Hrútaborg
Hnappadal
835 m


Kistufell
Esju
815  m

 


 


Paradísarhnúkur
Flekkudal Esju
812  m


Kálfstindar
Kleifur
807 m


NyrstaJarlhetta
Langjökli
801  m


Rauðahnúkafjall
bak við Hafnarfjall
781 m


Kolbeinsborg
Kolbeinsstaðafjalli
770 m


 


Tungukambur Súlárdal Skarðsheiði
709 m


Hafursfell
Snæfellsnesi
761 m


Ytri Svartitindur
bak við Hafnarfjall
725 m


Blákollur
við Hafnarfjall

722 m


Esjuhorn
Eyjadal Skarðsheiði

720  m


Steinahlíð
Kolbeinsstaðafjalli
715  m


Hrafnatindar
Kolbeinsstaðafjalli
672 m


Einhyrningur ofl
663 m


Þverfell eystra
 bak við Hafnarfjall
651 m


Seltindur
Eyjadal Skarðsheiði
648 m


Hrossatunguhnúkur
bak við Hafnarfjall
638 m


Ytri Svartitindur
bak við Hafnarfjall
636 m


Geldingaárháls
bak við Hafnarfjall
605 m


Hafnarfjallsöxl
syðri

591 m


Snóksfjall
við Blákoll
587 m


Ingólfsfjall
Suðurlandi
583 m

Botnsfjall
Snæfellsnesi
573 m

Eyrarþúfa
Súlárdal Skarðsheiði
500 m

Stapafell Snæfellsnesi

488 m

Skálafjall
bak við Hafnarfjall

469 m


Rauðuhnúkar
við Bláfjöll
455 m

 


Múlafjall
Hvalfirði
394  m


Þverfell við Flosaskarð
392 m

Kattartjarnahryggir
við Kyllisfell
387 m

Sandsfell
Flekkudal Esju
389 m


Vatnshlíð Kleifarvatni
387 m

 
 


Miðfell
Þingvallavatni
336 m


Gullbringa Kleifarvatni
325 m

Kálfadalahlíðar Kleifarvatni
325 m

Dagmálafell Þingvallavatni
306 m

Lambhagi Kleifarvatni
202 m
 
 

 

 

 

 

 

Toppfarar gengu á 111 fjöll/tinda árið 2012 í
67 gönguferðum.
Þar af
48  ný fjöll, tinda eða gönguleiðir sem byggja upp fjallajólatréð í ár.

Í lok ársins hafa klúbbmeðlimir gengið alls á
 
246 fjöll
 í alls
355 fjallgöngum
...

 

 

 

 

   


Elsku Toppfarar

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þakklæti og von um aðra eins veislu á fjöllum og er að baki okkar síðustu rúm fimm ár.

Hjartansþakkir fyrir eljuna, samstöðuna, hugrekkið, jákvæðnina, gleðina og ekki síst ómetanlegu vináttuna sem skapast hefur á milli okkar á fjöllum og öllum stundum.

Megi árið 2013 gefa okkur áfram heilsu, gleði, þakklæti og áræðni til að lenda í fleiri ómetnlegum ævintýrum í óbyggðunum..

Ykkar þjálfarar Bára og Örn

Sjá fjallajólatré Toppfara árin 2007, 2008, 2009,  2010 og 2011.

 

*****************
Jólakveðja þjálfara til klúbbmeðlima gegnum youtube í fyrra:
 



http://www.youtube.com/watch?v=AtFbXDT7TCU&feature=youtu.be

*****************

 
***  F j a l l a j ó l a t r é  ***  
T o p p f a r a

...skreytt með nýjum slóðum klúbbsins árið 2011...

 

 

 


El Misty
Perú
5.822 m

 

 

 

 

 


Andesfjöllin
Santa Cruz Perú
4.750 m


Machu Picchu
Inkaslóðum Perú
4.215 m


Colca Canyon
Perú
3.300 m

 

 


 


Hrútsfjallstindar
Vatnajökli
1.875 m


Ok
Kaldadal
1.193 m


Magni
Fimmvörðuhálsi
1.067 m


 

   

 


Háasúla
Botnssúlum

1.060
m


Miðsúla
Botnssúlum
1.053 m


Miðkambur
Grjótáral
1.026 m


Súlnaberg
Botnssúlum
965 m


Stóra Jarlhetta
Langjökli
950 m

 


 


Miðfjall
Grjótárdal
944 m


Smjörhnúkar
Hítardal
933 m


Hátindur
Esju
918 m


Eilífsklettur
Eilífsdal
906 m


Kambur
Grjótárdal
884 m


 


Elliðatindar
Snæfellsnesi
867 m


Skálatindur
Eilífsdal
827 m


Hrafnabjörg
þingvöllum
780 m


Þjófahnúkur
Þingvöllum
703 m


Syðri Jarlhettur
Langjökli
696 m


Þórnýjartindur
Eilífsdal
679 m


Staka Jarlhetta
Langjökli
672 m


Brekkukambur
Hvalfirði
657 m


Tröllkarl
Hrafnabjörgum

626 m


Tröllbarn
Hrafnabjörgum
619 m


Tröllskessa
Hrafnabjörgum
593 m


Mórauðakinn
Skorradal
568 m


Kyllisfell
Ölkelduhálsi
493
m


Eyrarfjall
Hvalfirði
490 m

 
Austari Stardalshnúkar
Stardal
438 m

Sköflungur
Dyrafjöllum
432 m

Gráuhnúkar
Hellisheiði
416 m

Dalafell
Reykjadal
407
m

Grænavatnseggjar
við Sogin
394 m
 
   
Djúpavatnseggjar
við Sogin
367 m

Sandfellsklofi
Kleifarvatni
277  m

Háuhnúkar
Kleifarvatni
268 m
   
 

 

 

 

 

 

Toppfarar gengu á 102 fjöll/tinda árið 2011 í
63 gönguferðum.
Þar af
39  ný fjöll, tinda eða gönguleiðir sem byggja upp fjallajólatréð í ár.

Í lok ársins hafa klúbbmeðlimir gengið alls á
 
196 fjöll
 í alls
292 fjallgöngum
...

 

 

 

 

   

Árið 2011 markaði ógleymanleg afreksspor í  sögu Toppfara...

*Þrátt fyrir mótbyr á köflum gáfum við ekki eftir og uppskárum magnaðar göngur og tindferðir í hæsta gæðaflokki...
*Lögðumst í víking til Perú í Suður-Ameríku og heimsóttum göldróttar slóðir af öðrum heimi en þessum...
*Gengum upp í tæpa 6.000 metra hæð á El Misty sem telst til afreka -hvað þá í 20 manna leiðangri...
*Upplifðum ógleymanlegar stundir í alls kyns óbyggðum á ægiförgum slóðum Íslands...
*Stóðum saman sem einn maður og styrktum vinabönd sem aldrei slitna...

Haf þökk elsku Toppfarar
fyrir dýrmæta vináttu og félagsskap á fjöllum sem ekkert toppar...

Sjá fjallajólatré Toppfara árin 2007, 2008, 2009 og 2010.

 

 

*****************
Jólakveðja þjálfara til klúbbmeðlima gegnum youtube:



http://www.youtube.com/watch?v=AtFbXDT7TCU&feature=youtu.be

*****************

 


 

***  F j a l l a j ó l a t r é  ***  
T O P P F A R A

á r I Р  2010 !

nýju gönguleiðirnar
tindarnir
fjöllin
á árinu!
 

 

 


Hvannadalsnúkur
Vatnajökli
2.110 m

 

 

 

 

 


Snæfell
Norðan Vatnaj.
1.846 m


Saxi
Tindfjallajökli
1312 m


Hornklofi
Tindfjallajökli
1258 m

 

 

 


Búri
Tindfjallajökli
1.240 m


Dyrfjöll
Borgarfirði eystri
1.148 m


Haki
Tindfjallajökli
1.142 m

     

 


 


Gráfell
Tindfjallajökli
1.070 m


Vestursúla
Botnssúlum
1.189 m



Bleikur
Ljósufjöllum
1.047 m


 

   

 


Högnhöfði
Úthlíð
1.018 m


Bláfell
Tindfjallajökli
1.012 m


Norðursúla
Botnssúlum
1.010 m


Gráni
Ljósufjöllum
1.006 m



Kaldbakur
Vestfjörðum
1.001 m

 


 


Hádegishyrna
Skarðsheiði
973 m


Skessuhorn
Skarðsheiði
970 m


Strútur
Borgarfirði
957 m


Hábunga
Esju
914 m


Kistufell
Blikdal
851 m


 


Miðhnúkur
Hafnarfjalli
840 m


Flosatindur
Kálfstindum
838 m


Suðurhnúkur
Hafnarfjalli
824 m


Mórauðihnúkur
Skarðsheiði
819 m


Hróarstindar
Hafnardal

792 m


Tindstaðafjall
Blikdal
739 m


Katlaþúfa
Hafnarfjalli
778 m


Klausturstunguhóll
Hafnarfjalli
751 m


Dýjadalshnúkur
Blikdal
739 m


Þverhnúkur
Hafnarfjalli
736 m


Þríhyrningur
Suðurlandi
693
m


Tungukollur
Hafnarfjalli
682
m


Þverfell
Hafnarfjalli
635 m


Suðri
Kálfstindum
838 m


Skálafell
Hellisheiði
581 m 


Lambafell
Þrengslum
581 m

Geithóll
Esju
560 m

Melahnúkur
Blikdal
558 m

Innra Mjóafell
Þingvöllum
542 m

Stóra Reykjafell
Hellisheiði
541 m

Stóri Reyðarbarmur
Þingvöllum
527 m


Strokkur
Brúarárskörðum
522 m


Rauðhóll
Esju
483 m

Lambafellshnúkur
Þrengslum
547 m

Hátindur
Dyrafjöllum
 435 m

Hnefi
Lokufjalli
427 m

Stapatindur
Sveifluhálsi
415 m


Brúarárskörð
Úthlíð
415 m

 
Hofmannatindur
Sveifluhálsi
409 m

Miðdegisnúkur
Sveifluhálsi
400 m

Vigdísartindur
Sveifluhálsi
394 m

Jórutindur
Dyrafjöllum
397 m

Fremra Mjóafell
Þingvöllum
594 m
 
 
Folaldatindur
Sveifluhálsi
387 m

Hrútatindur
Sveifluhálsi
384 m

Hellutindar Sveifluhálsi
376 m

Stardalshnúkar
Mosfellsdal
315 m

Þríhnúkar Mosfellsdal
291 m
 
   
Haukafjöll
Mosfellsdal
268 m

Tröllafoss
Mosfellsdal
161 m

Kjaransbraut
Vestfjörðum
82 m
   
 

 

 

 

 

 

Toppfarar gengu á 105 fjöll/tinda árið 2010.
Þar af  
61 ný fjöll, tinda eða gönguleiðir sem byggja upp fjallajólatréð í ár.

Í lok ársins hafa klúbbmeðlimir gengið alls á
 
150 fjöll
 í alls
221 fjallgöngum
...

 

 

 

 

 

   

Hjartansþakkir fyrir ógleymanlegt ár á fjöllum sem sló enn einu sinni fyrri árum við í
magni, afrekum, fegurð og ævintýrum... en fyrst og fremst ómetanlegri vináttu
og anda sem er engum líkur...

Ævintýri okkar á fjöllum verður hvergi réttilega með orðum, myndum eða sögum lýst...
ekki heldur með nákvæmri tölfræði þó ansi dugleg séum við að telja...
heldur með birtunni sem af þeim stafar innra með okkur öllum...

Megi árið 2011 komast með tærnar þar sem árið 2010 hafði hælana...
Sjáumst glöð og til í allt sem aldrei fyrr í fyrstu göngu ársins...
á nýjum tindum á Skarðsheiðinni...

Sjá fjallajólatré Toppfara árin 2007, 2008 og 2009

 

Elsku Torar...
F j a l l a j ó l a t r é    T O P P F A R A
á r I Р  2 0 0 9

- nýju tindarnir á árinu -
   

 

 


Virkisjökull
Hvannadals
hnúkur
2.030 m

 

 

 

 

 
 

 

 


Herðubreið
1.700 m


Kerling
1.554 m


Tindfjallajökull
1.475 m

 
 

 

 


Þríklakkar
1.380 m


Bóndi
1.360 m


Hverfandi
1.330 m

     
 

 


Syðri Súla
1.213 m


Hlöðufell
1.204 m


Stóri Krummi
1.170 m


Ytri Súla
1.144 m


Skjaldbreiður
1.069 m

   
 

 


Helgrindur
998 m


Hólstindur
939 m


Tröllatindar
938 m


Háasúla
931 m


Gildalshnúkur
857 m

   
 


Skessuhorn
820 m


Vesturhnúkur
817 m


Búrfell
786 m


Þórólfsfell
772 m


Bláfjallahorn
703


Bláfjallahryggur
699 m


Giljatunga
698 m

 
 


Ólafsskarðs-hnúkar
635 m


Smáþúfur
598 m


Sauðadala-hnúkar
584 m


Þríhnúkar
563


Hrómundartindur
562


Syðstu Bollar
560


Lakahnúkur
548 m

 

 


Blákollur
534 m


Tjarnarhnúkur
527 m


Þverfell Esju
491 m


Leggjarbrjótur
483 m


Grænadyngja
409 m


Trölladyngja
392 m


Kristjánsdala-horn
329 m

 

   
Þverfell
316 m

Bæjarfell
297 m

Arnarfell
243 m

Sýlingarfell
247 m

Þorbjörn
240 m
   
   

 

 

 

 

 

Toppfarar gengu á 76 fjöll/tinda árið 2009.
Þar af 43 ný fjöll sem byggja upp fjallajólatréð í ár.

Í lok ársins hafa Toppfarar gengið alls á
 95 fjöll í 156 fjallgöngum...
 

 

 

 

 

     

Elsku Toppfarar...

Þjálfarar senda ykkur hjartans óskir um gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár á fjöllum... með þökkum fyrir einstaka vináttu,  aðdáunarverða frammistöðu og ógleymanleg ævintýri á fjöllum.

Munið að þó við séum að telja fjöllin sem er nú bara til gamans gert þá er það ekki magnið sem gildir í lífinu heldur gæðin... ganga í góðra vina hópi er gulls ígildi sama hvar,  hvenær og hvernig.

Við eigum ólýsanlega góða göngudaga að baki...

... og við erum rétt að byrja...

Sjá fjallajólatré Toppfara frá upphafi árið 2007

j

 

F j a l l a j ó l a t r é   
á r S I N S   2 0 0 8

- nýju tindarnir á árinu -

 

 

 

 


Alparnir
2.386 m

 

 

 

 

 

 


Eyjafjallajökull
1.655 m


Öræfajökull
1.562 m


Snæfellsjökull
1.418

 

 

 


Þórisjökull
1.324 m


Laugavegurinn
1.073 m


Fimmvörðuháls
1.053 m

   

 


Tröllakirkja Hít
951 m


Baula
939 m


Hvalfell
853 m


Vörðuskeggi
814 m


Ármannsfell
771 m

 

 


Stóri og Miðbollar
563 m


Geitafell
513 m


Grasdalahnúkur
457 m


Ölkelduhnúkur
437 m


Molddalahnúkur
402 m

 


Þyrill
398 m


Litla Sandfell
296 m


Mosfell
289


Hörðuvallaklof
275 m


Búrfell Hf
185 m


Lambafell
172 m


Lágafell Mos
124 m

 

 

 

 

 

 

Toppfarar gengu á 46 fjöll árið 2008.
Þar af 24 ný fjöll sem byggja upp fjallajólatréð í ár.

Í lok ársins hafa Toppfarar gengið á
 51 fjöll í alls
90 fjallgöngum
...
 

 

 

 

 

   

Hjartans jóla- og nýárskveðja frá þjálfurum...
 

 

 

F j a l l a j ó l a t r é   T o p p f a r a    á r i ð   2 0 0 7

Þjálfarar óska Toppförum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs á fjöllum...

 

 


Hekla 1491m

 

  Takk fyrir að leyfa okkur að vera með að sækja fjöll Íslands heim og sigra tinda...

 

 

 

 


Syðsta Súla 1095m


Ljósufjöll
1063m


Skarðshyrna
Heiðarhorn
1053m

 

 

 


Kerhólakambur
851m


Móskarðahnúkar
807m


Skálafell
774m

   

 


Þverfellshorn
770m


Vífilsfell
655m


Akrafjall
Milli jóla og nýárs
643m


Hengill
Fórum 632m
Er 805m


Stóra
Kóngsfell
602m

 

 


Stóri
Meitill
514m


Drottning
507m


Grímmannsfell
482m


Litli
Meitill
465m


Keilir
378m

 


Helgafell Hf
338m


Úlfarsfell
295m


Reykjaborg
286m


Reykjafell Mos
273m


Húsfell
228m


Æsustaðafjall
220m


Helgafell Mos
215m

   

Samtals 24 fjöll voru gengin á vegum Toppfara árið 2007.
Stefnt er á hærri fjöll árið 2008 og 24 ný fjöll.
Öll fjöll hafa sinn sjarma óháð hæð
og gæði eru ávallt mikilvægari en magn...

 

 

 

 

 

 

 


 

Við erum á toppnum... hvar ert þú?
www.toppfarar.is


Toppfarar ehf - Viðarrima 52 - 112 Reykjavík - Kt: 581007-2210 - Sími: +354-867-4000 / -899-8185 / -588-5277 - Netfang: bara(hjá)toppfarar.is
Copyright: Höfundarréttur: Bára Agnes Ketilsdóttir